Fyrirvari: Ráðfærðu þig alltaf við lækni eða sjúkraþjálfara áður en þú byrjar að æfa. Hlustaðu á líkamann þinn meðan á æfingum stendur, og hættu strax ef þú finnur fyrir óþægindum eða sársauka.
Hlaupaplanið samanstendur af 8 mismunandi æfingum. Hlaupaæfingarnar skiptast í "sprett æfing" og "tempó æfing" þar sem sprettæfing keyrir upp púlsinn og eru teknir á tíma og tempó æfing er ætluð að ná X vegalengs. Kynntu þér meira um hlaupaplanið hér.
Þessi æfing tekur um 24 mín.
Stilltu Interval timer app á: Warm-up: 4 mín, High: 2 mín, Low: 2 mín, Set: 4. Cool down 4 mín.
Upplýsingar um æfinguna: Byrjaðu á upphitunaræfingu sem er hér að neðan. Stilltu Interval Timerinn og kveiktu á honum og Runkeeper appinu eða Strava til að fygljast með vegalengd þegar þú ert búin með upphitunaræfingarnar. Æfingin í dag byrjar á 4 mín upphitun þar sem þú skalt byrja á að ganga og stígvaxandi skokka þannig að þú sért tilbúin fyrir fyrsta sprett eftir 4 mín. Þá hefst fyrsti spretturinn sem er í 2 mín. Þú skalt hlaupa eins hratt og þú getur þannig að þú náir að halda 2 mín tempói allan tímann. Það fylgjir 2 mín rólegt tempó eftir það og er það í formi göngu og skokk þanngi að þú sért tilbúin í næsta sprett eftir 2 mín. Þú gerir þetta 4x. Þá tekur við "cool down" sem er niðurlagshlaup og er það í 4 mín. Cool down getur verið í formi göngu, skokk eða hlaup.
Hafðu í huga að anda inn um nef og út um munn í sprettunum þannig að þú keyrir púlsinn ekki óþarlega upp. Endaðu í teygjuæfingu. Skráðu hjá þér tímann sem æfingin tók og vegalengd, getur gert það t.d. hér í comment.
Ef þú tekur þessa æfingu á hlaupabretti skaltu hafa í huga að vera með smá upphækkun, t.d. 0,5-1,5.
Upphitun
1x í gegn:
Æfing dagsins
4 mín ganga og skokk
4x2 mín sprettur, 2 mín ganga og skokk
4 mín niðurlag
Teygjuæfing
4/4x innanverða lærvöðva + hryggvinda eða 30 sek teygja á innanverða lærvöðva
8x rúðuþurrkur
30/30 sek mjaðmateygja H svo V
30 sek happy baby pose
4/4x liggjandi hryggvinda
20/20 sek framanverð læri
20/20 sek aftanverð læri
Bættu við frekari teygjum ef þér finnst þurfa.
Láttu mig vita í comment hvernig þér fannst þessi æfing og skráðu endilega vegalengdina/tímann í comment svo þú vitir það þegar þú endurtekur æfinguna. Endilega deildu henni með öðrum svo hún geti nýst fleirum.
Comments