Fyrirvari: Ráðfærðu þig alltaf við lækni eða sjúkraþjálfara áður en þú byrjar að æfa. Hlustaðu á líkamann þinn meðan á æfingum stendur, og hættu strax ef þú finnur fyrir óþægindum eða sársauka.
Ræktaræfingaplanið samanstendur af 28 mismunandi æfingum og er æfingaplanið fjórskipt eða þannig að það er rúllað á milli efri líkama æfingu, neðri líkama æfingu, æfingu fyrir allan líkamann og þol og core æfingu. Kynntu þér meira um ræktaræfingaplanið hér. Heimaæfingaútfærsla af þessari æfingu má finna hér.
Um æfinguna: Byrjaðu á að taka upphitun fyrir neðri líkamann, síðan fylgir þú æfingarútínunum, byrjar á 1 og ferð 3 hringi í heildina síðan ferði í æfingarútínu 2 og klárar 3 hringi, æfingarútínu 3 og klárar 3 hringi og endar í æfingarútínu 4 sem er á þrektæki. Endar á teygjuæfingu.
Tæki/tól fyrir æfinguna: Assault bike eða annað þrektæki, eitt eða tvö handlóð, jóga bolti, mini bands teygja
Upphitun fyrir neðri líkamann
1x í gegn:
4x köttur kú
15/15x dú í sófa teygjunni
10/10x hnébeygja há hné
20x good morning
20x súmó dúa
2 mín þrektæki
Æfingarútína 1:
Viðmiðunarþyngd: Byrjandi 2x5kg handlóð eða 1x 10kg stöng. Lengra komin 2x8-12kg handlóð eða 20+kg stöng.
3x í gegn:
15/15x upp/afturstig + há hné með upphækkun H/V (tvö handlóð eða stöng og pallur)
15/15x romanian H/V (tvö handlóð eða stöng)
15/15x hip thrust H/V eða þá 15x jafnfætist (eitt handlóð eða stöng)
Hvíld - miða við 30-40 sek
Æfingarútína 2
Viðmiðunarþyngd: Byrjandi 2x5kg handlóð, lengra komin 2x8-10kg handlóð.
3x í gegn:
12/12x bulgarian H/V (eitt eða tvö handlóð, bekkur)
12 cal assault bike eða 60 sek þrektæki
Hvíld eftir þörfum - miða við 30-40 sek
Æfingarútína 3
Viðmiðunarþyngd: Byrjandi, létt og venjast tækinu og að finna fyrir miðjunni í hreyfingunni. Lengra komin eins þungt og þú getur, það gæti verið yfir 70kg+
3x í gegn:
Hvíld eftir þörfum - miða við 30 sek
Æfingarútína 4
4 mín assault bike eða annað þrektæki
Teygjuæfing
4/4x innanverða lærvöðva + hryggvinda eða 30 sek teygja á innanverða lærvöðva
8x rúðuþurrkur
30/30 sek mjaðmateygja H svo V
30 sek happy baby pose
4/4x liggjandi hryggvinda
20/20 sek framanverð læri
20/20 sek aftanverð læri
Bættu við frekari teygjum ef þér finnst þurfa.
Láttu mig vita í comment hvernig þér fannst þessi æfing og skráðu endilega þyngdina sem þú notaðir svo þú vitir það þegar þú endurtekur æfinguna. Endilega deildu henni með öðrum svo hún geti nýst fleirum.
Comments