Öræfing 19: Allur líkaminn
- Sig
- Dec 5, 2024
- 2 min read
Updated: Dec 6, 2024
Fyrirvari: Ráðfærðu þig alltaf við lækni eða sjúkraþjálfara áður en þú byrjar að æfa. Hlustaðu á líkamann þinn meðan á æfingum stendur, og hættu strax ef þú finnur fyrir óþægindum eða sársauka.
Öræfingaplanið samanstendur af 28 mismunandi æfingum og er æfingaplanið fjórskipt eða þannig að það er rúllað á milli efri líkama æfingu, neðri líkama æfingu, æfingu fyrir allan líkamann og þol og core æfingu. Allar æfingarnar taka aðeins 16 mínútur frá upphafi til enda.
Tæki/tól fyrir æfinguna: Tvö handlóð (4-7 kg)
Um æfinguna: Byrjaðu á 2 mín í upphitun þar sem þú ferð 1x í gegnum allar æfingarnar og oftar í gegnum síðustu tvær æfingarnar (út 2 mín upphitunar tímann). Taktu síðan 12 mín æfingu á tíma. Hver æfing er 25 sek með 5 sek á milli og farðu 3 hringi. Bættu við 1 mín finisher og endaðu á 1 mín af teygjum eða þann tíma sem þú getur gefið þér í þær.
Ef það stendur t.d. 5/5x þá á ég við að klára 5 fyrst á hægri (H) og svo 5 á vinstri (V). Ef það stendur t.d. 6x og þetta er æfing sem reynir á bæði H og V þá er þetta heildar fjöldi endurtekninga og þú skiptist á H og V.
Interval timer: Ef þú vilt ekki taka þessa æfingu live með mér skaltu stilla Interval timer app á; Warm up: 2 mín, High: 25, Low: 5 og Set: 24. Cool down: 1 mín (teygjur)
Eða smelltu hér: https://youtu.be/x7E9qv7PPz4
2 mín upphitun
Æfingin - 25/5x 3 hringir - 12 mín
Split snatch H (eitt handlóð)
Split snatch V (eitt handlóð)
Thrusters (tvö handlóð)
Planka róður (tvö handlóð)
Finisher - 1 mín
40-60x mountain climbers (svo lengi sem þú heldur tempó)
Súmó dú út tímann
1 mín teygjur/niðurlag
5x köttur kú
AUKA teygjur ef þú hefur tíma og líkaminn kallar á
Láttu mig vita í comment hvernig þér fannst þessi æfing! Og endilega deildu henni með öðrum svo hún geti nýst fleirum.
Comments